Eva

Húrra fyrir því...

Jáhá... þetta verður "hamingjusamari" endir í þetta skiptið.

Húrra fyrir því Smile

Það verður gaman að fylgjast með því hvernig atburðir þróast í framhaldi af þessari ákvörðun... ég mun verða á "refresh" takkanum á mbl.is og fylgjast spennt með

Mér finnst skipta miklu máli að reyna að halda honum á lífi sem fyrsta kost. Svo getur vel verið að nauðsynlegt verði að deyða björninn að lokum en þá getum við allavegana sagt að við reyndum það sem við gátum í staðinn fyrir að ana út með byssur við fyrsta tækifæri.

Líffræðingurinn gleðst.

Þar til næst - síja ;)


mbl.is Erfið aðgerð framundan að Hrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er sjálfsagt gott að leifa dýrinu að eiðilegja æðarvarpið á Hrauni, ættli fjölskildan á Hrauni fái nokkurar bætur fyrir það?

Hverni liði þér ef ísbjörn væri núna á röltinu í næstu götu og engin mætti gera neitt vegna þess að eitthvert bloggara lið á kaffihúsum í 101 vil ná bangsa lifandi af því að hann er svo sætur og krúttlegur?

Þarna dugar ekkert annað en blí. Það er bara heppni að það voru bara æðaregg í hádegismat en ekki eitthvað annað sem ég ætla ekki að nefna hér

Gísli Einarsson (IP-tala skráð) 16.6.2008 kl. 23:57

2 identicon

Æðarvarpið er jafn friðað og ísbirnir ekki satt! Og ef vernda á allt líf eins og sumir segja, af hverju fær þá bjössi að háma í sig óklakta dásamlega fallega æðarunga. Kannski að hann borði kollurnar líka. Þær sitja víst oft kyrrar til að vernda unga sína í eggjunum þótt hætta steðji að. Svo er spurning hvort eggin duga nógu lengi því ekki má gefa honum að eta því þá er hann búinn að læra að hjá mönnum er matur og ekki hægt að sleppa honum aftur. Kannski fær hann ,,veiða" lömb á fæti.

ha ha (IP-tala skráð) 17.6.2008 kl. 00:17

3 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

stórhættulegt að blogga svona um fréttir...kommentar alltaf eitthvað fólk sem maður hefur engan áhuga á að fá komment frá...þó að ég sé sammála þeim  en gaman að sjá að þú sért ennþá á lífi

Heiðdís Ragnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 11:28

4 Smámynd: Eva

híhí já það er satt... og líka svona ómálefnanleg komment frá óþekktum aðilum... varla hægt að svara þeim  

En það meiga allir hafa skoðanir þó ég sé ekki alveg sammála... enda eins og ég sagði - mér finnst lágmark að þau úrræði sem standi til boða séu skoðuð áður en þetta byssglaða fólk fær að hlaupa af stað til að skjóta. Svo getur velverið að það verði ekki hægt að framkvæma það sem á að gera núna og þá bara aflífa dýrið - það er ekki hægt að hafa svona hættulegt rándýr ráfandi um til lengri tíma.

já ég gæti trúað því að ég sé vöknuð upp frá bloggdauðanum  
...kanski... lofa engu hehe

Hey Heiðdís... hvað með Nóahitting áður en þú flytur austur ?
Hefur þú tök á að bjóða heim til þín ?

Eva, 17.6.2008 kl. 13:23

5 Smámynd: Heiðdís Ragnarsdóttir

umm...það fer að verða fátt um daga í það. annað hvort næsta föstudag eða laugardag (fer eftir því hvenar vinnupartýið er) og svo bara virk kvöld...

Heiðdís Ragnarsdóttir, 17.6.2008 kl. 23:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband